Sjávarútvegsráðuneyti

701/2004

Reglugerð um takmarkanir á heimild til veiða á kúfiski. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar á kúfiski með kúfiskplógi í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar. Ráðuneytinu er þó heimilt að veita tímabundin leyfi til tilraunaveiða á kúfiski samkvæmt 13. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast gildi 1. september 2004 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 345, 18. september 1992, um leyfisbindingu tiltekinna veiða.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 17. ágúst 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica