Sjávarútvegsráðuneyti

194/2004

Reglugerð um bann við veiðum með fiskivörpu á Langanesgrunni án smáfiskaskilju. - Brottfallin

194/2004

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með fiskivörpu á Langanesgrunni án smáfiskaskilju.

1. gr.

Frá og með 26. febrúar 2004 eru veiðar með fiskivörpu á svæði á Langanesgrunni aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 805, 28. október 2003, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 43'80 N - 13° 20'67 V
2. 66° 44'00 N - 13° 02'00 V
3. 66° 42'00 N - 12° 56'00 V
4. 66° 40'97 N - 12° 54'01 V
5. 66° 36'88 N - 13° 15'09 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 24. febrúar 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica