Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða er orðast svo: Þrátt fyrir 2. málslið 2. gr. er heimilt að stunda síldveiðar með vörpu utan 12 sjómílna frá viðmiðunarlínu á svæði fyrir Vestfjörðum, sem að sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi vestur frá Blakknesi og að norðan af línu, sem dregin er réttvísandi í norðvestur frá Straumnesvita.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi.