Sjávarútvegsráðuneyti

713/2003

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830, 28. nóvember 2002, um síldveiðar með vörpu. - Brottfallin

713/2003

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 830, 28. nóvember 2002,
um síldveiðar með vörpu.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða er orðast svo: Þrátt fyrir 2. málslið 2. gr. er heimilt að stunda síldveiðar með vörpu utan 12 sjómílna frá viðmiðunarlínu á svæði fyrir Vestfjörðum, sem að sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi vestur frá Blakknesi og að norðan af línu, sem dregin er réttvísandi í norðvestur frá Straumnesvita.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 6. október 2003.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica