Sjávarútvegsráðuneyti

311/2003

Reglugerð um bann við línuveiðum við Suður- og Suðausturland. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar með línu eru bannaðar á eftirgreindum svæðum:

1. Á Síðugrunni á svæði, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 35´ N – 17° 19´ V
2. 63° 28´ N – 17° 19´ V
3. 63° 28´ N – 17° 38´ V
4. 63° 35´ N – 17° 38´ V


2. Suður af Ingólfshöfða á svæði, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 46´ N – 16° 33´ V
2. 63° 37´ N – 16° 17´ V
3. 63° 36´ N – 16° 37´ V
4. 63° 37´ N – 16° 55´ V
5. 63° 45´ N – 16° 47´ V


3. Á Mýragrunni á svæði, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 59´ N – 15° 24´ V
2. 63° 50´ N – 15° 24´ V
3. 63° 50´ N – 15° 47´ V
4. 63° 59´ N – 15° 57´ V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 3. maí 2003 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 28. apríl 2003.

F. h. r.
Þorsteinn Geirsson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica