Sjávarútvegsráðuneyti

230/2003

Reglugerð um bann við línuveiðum á Kötlugrunni. - Brottfallin

1. gr.

Allar línuveiðar eru bannaðar á svæði á Kötlugrunni sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 20´ N – 18° 49´ V
2. 63° 24´ N – 18° 05´ V
3. 63° 12´ N – 18° 05´ V
4. 63° 15´ N – 18° 41´ V



2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 2. apríl 2003 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 31. mars 2003.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Snorri Rúnar Pálmason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica