Sjávarútvegsráðuneyti

107/2003

Reglugerð um bann við veiðum með línu og fiskibotnvörpu á Rifsbanka. - Brottfallin

107/2003

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með línu og fiskibotnvörpu á Rifsbanka.

1. gr.

Veiðar með fiskibotnvörpu og línu eru bannaðar á Rifsbanka með eftirgreindum hætti:

a. Veiðar með fiskibotnvörpu á svæði á Rifsbanka eru aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju í samræmi við viðauka við reglugerð nr. 278, 4. apríl 2001, um gerð og búnað smáfiskaskilju með síðari breytingum. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
1. 67° 1200 N – 16° 0500 V
2. 67° 1600 N – 15° 1700 V
3. 67° 0300 N – 14° 2300 V
4. 66° 5800 N – 14° 3700 V
5. 67° 1000 N – 15° 1400 V
6. 67° 0500 N – 15° 5000 V
7. 66° 5300 N – 15° 3700 V
8. 66° 5300 N – 15° 5000 V


b. Allar veiðar með línu og fiskibotnvörpu eru bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
1. 67° 0500 N – 15° 5000 V
2. 67° 1000 N – 15° 1400 V
3. 66° 5800 N – 14° 3700 V
4. 66° 5300 N – 15° 3700 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 21. febrúar 2003 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 10, 14. janúar 2002, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 18. febrúar 2003.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica