Sjávarútvegsráðuneyti

69/2003

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2003. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20´N - 29°45´V (við miðlínu milli Íslands og Grænlands).
2. 63°00´N - 26°00´V
3. 62°00´N - 27°00´V
4. 60°22´N - 24°20´V

Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæði 1 F og reiknast aflinn til aflamarks viðkomandi skips sbr. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar. Um þær veiðar gilda ákvæði reglugerðar nr. 36, 15. janúar 2003, um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar, NAFO 2003.

Ráðherra er heimilt að breyta umræddu veiðisvæði sé talin ástæða til vegna samsetningar afla.


2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.

Þá er skipum, sem fengið hafa heimild til veiða úr aflamarki annarra aðildarríkja NEAFC en Íslands, óheimilt að hefja veiðar skv. slíkri heimild fyrr en Fiskistofu hefur borist yfirlýsing frá viðkomandi aðildarríki NEAFC um slíkan rétt skipsins til veiða á úthafskarfa. Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skulu ákvæði 5. - 10. gr. gilda um þessar veiðar.


3. gr.

Á árinu 2003 er þeim íslensku fiskiskipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 45.000 lestir af úthafskarfa á "deilisvæði" innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20´N - 29°45´V
2. 63°00´N - 26°00´V
3. 62°00´N - 27°00´V
4. 60°22´N - 24°20´V
5. 60°14´N - 30°00´V
6. 62°55´N - 34°00´V

Þá er þeim íslensku fiskiskipum sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu á árinu 2003, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 10.000 lestir af úthafskarfa á "deilisvæði" utan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 60°22´N - 24°20´V
2. 60°14´N - 30°00´V
3. 62°55´N - 34°00´V
4. 65°20´N - 29°45´V

Heimilt er að veiða úthafskarfa sem fjallað er um í 1. mgr. 3. gr. á því svæði sem fjallað er um í 2. mgr. 3. gr.

Fiskistofa skal úthluta hverju skipi aflamarki í úthafskarfa á grundvelli aflahlutdeildar þess, annars vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og hins vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. í þeim hlutföllum sem í 1. og 2. mgr. þessarar greinar segir.


4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt l. nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Ákvæði 10. gr. l. nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð.


5. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæðinu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.


6. gr.

Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., og úthafskarfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu hafsvæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til Eftirlitsstöðvarinnar:
Komutilkynning: Skylt er skipstjóra að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 6 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða veiðisvæðið sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,ENT" sem komutilkynning.
4. Kóði fyrir það deilisvæði sem fara á inn á: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæðið skv. 1. mgr. 3. gr. eða UKX fyrir úthafskarfasvæði skv. 2. mgr. 3. gr.
5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara inn á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC og svæði innan íslenskrar lögsögu skv. 1. mgr. 1. gr. eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
6. Kallmerki skipsins.
7. Nafn skipsins.
8. Skipaskrárnúmer.
9. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum.
10. Áætlað heildaraflamagn um borð í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
11. Dagsetning og tími.

Aflatilkynning:

Hvern mánudag skal tilkynna Eftirlitsstöðinni um heildarafla síðustu viku, þ.e. frá upphafi síðasta mánudags, til loka síðasta sunnudags, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Hafi skip verið skemur en viku á veiðisvæðinu skal gefa upp afla frá því skipið hóf veiðar á svæðinu. Ennfremur skal senda aflatilkynningu áður en farið er milli svæða sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,CAT" sem aflatilkynning.
4. Kóði fyrir það deilisvæði sem aflatilkynningin á við: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr. UKX fyrir úthafskarfasvæði skv. 2. mgr. 3. gr.
5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem aflinn er veiddur á: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC og svæði innan íslenskrar lögsögu skv. 1. mgr. 1. gr. eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
6. Kallmerki skipsins.
7. Vikuafla í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða eða frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
9. Dagsetning og tími.

Lokatilkynning:

Þegar veiðiskip yfirgefur deilisvæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða deilisvæðið sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með ekki meira en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 6 klukkustunda fyrirvara. Jafnframt skal í tilkynningu tilgreindur afli frá því að veiðar hófust, eða frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send miðað við afla upp úr sjó, aðgreindan eftir tegundum og einnig löndunarhöfn. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:

1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,EXI" sem lokatilkynning.
4. Kóði fyrir það deilisvæði sem lokatilkynningin á við: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr. UKX fyrir úthafskarfasvæði skv. 2. mgr. 3. gr.
5. Kóði fyrir það fiskveiðistjórnunarsvæði eða lögsögu sem verið er að fara út af: "NEA" fyrir samningssvæði NEAFC og svæði innan íslenskrar lögsögu skv. 1. mgr. 1. gr. eða "GRL" fyrir lögsögu Grænlands.
6. Kallmerki skipsins.
7. Vikuaflamark í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða eða frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send.
9. Löndunarhöfn (áætlaður tími og dagsetning þar).
10. Dagsetning og tími.

Ofangreindar tilkynningar skulu sendar með þeim hætti er lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.

Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.


7. gr.

Skylt er að halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum karfa um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.

Óheimilt er að nýta í sömu veiðiferð heimild til veiða skv. 2. mgr. 2. gr. þessarar reglugerðar og heimild til veiða skv. 3. mgr. 2. gr. hennar. Sé það gert eða ef afla er blandað saman sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar, skal aflinn reiknaður til aflamarks sem úthlutað er skv. 1. mgr. 3. gr.

Skylt er að halda aðgreindum úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Sé úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. ekki haldið aðgreindum sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar skal aflinn reiknaður til aflamarks sem úthlutað er úr úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr.

Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 55% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.

Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,54.


8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands. Einnig skal koma fram hve mikill hluti aflans er fenginn á hvoru svæðinu skv. 1. og 2. mgr. 3. gr.


9. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


10. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 4. febrúar 2003.

Árni M. Mathiesen.
Þórir Skarphéðinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica