Sjávarútvegsráðuneyti

923/2002

Reglugerð um bann við síldveiðum fyrir Vesturlandi. - Brottfallin

923/2002

REGLUGERÐ
um bann við síldveiðum fyrir Vesturlandi.

1. gr.

Frá og með 2. janúar 2003 eru allar síldveiðar bannaðar á svæði úti fyrir Vesturlandi sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:


1. 64° 42´00 N – 25° 30´00 V
2. 64° 42´00 N – 24° 11´00 V
3. 63° 50´60 N – 23° 35´90 V
4. 63° 56´40 N – 24° 01´40 V
5. 63° 20´00 N – 24° 33´00 V
6. 64° 10´00 N – 25° 37´00 V


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 23. desember 2002.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica