Sjávarútvegsráðuneyti

624/2002

Reglugerð um bann við kolmunnaveiðum á Þórsbanka. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. ágúst 2002 til 31. desember 2002, eru allar veiðar á kolmunna bannaðar á Þórsbanka á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 64° 16'00 N – 12° 00'00 V
2. 64° 10'00 N – 12° 09'00 V
3. 64° 00'00 N – 12° 09'00 V
4. 63° 46'00 N – 12° 09'00 V
5. 63° 26'00 N – 11° 55'00 V
6. 63° 17'00 N – 11° 20'00 V
7. 63° 30'00 N – 10° 55'00 V
8. 63° 45'00 N – 10° 40'00 V
9. 64° 04'00 N – 11° 04'00 V
10. 64° 17'00 N – 10° 34'00 V
11. 64° 37'00 N – 10° 51'00 V
12. 64° 33'00 N – 11° 30'00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 28. ágúst 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Arndís Á. Steinþórsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica