Sjávarútvegsráðuneyti

484/2002

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu við Suðausturland án smáfiskaskilju. - Brottfallin

484/2002

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með fiskibotnvörpu við Suðausturland án smáfiskaskilju.

1. gr.

Á svæði við Suðausturströndina eru veiðar með fiskibotnvörpu aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 278, 4. apríl 2001, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 64°05´64 N - 13°14´96 V
2. 64°03´00 N - 13°12´20 V
3. 64°07´00 N - 13°00´50 V
4. 64°25´57 N - 12°25´00 V
5. 64°33´28 N - 12°31´36 V
6. 64°36´73 N - 12°20´81 V
7. 64°34´46 N - 12°13´45 V
8. 64°44´15 N - 11°58´19 V
9. 64°50´70 N - 12°07´73 V
10. 64°33´00 N - 12°40´00 V
11. 64°25´00 N - 12°34´00 V
12. 64°16´00 N - 12°46´80 V
13. 64°08´00 N - 13°02´55 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 12. júlí 2002 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 10. júlí 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica