Sjávarútvegsráðuneyti

787/2001

Reglugerð um bann við humarveiðum við Surtsey. - Brottfallin

787/2001

REGLUGERÐ
um bann við humarveiðum við Surtsey.

1. gr.

Frá og með 23. október 2001 eru alla veiðar með humarvörpu óheimilar við Surtsey, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta.

1. 63° 20'00 N – 21° 00'00 V
2. 63° 16'00 N – 20° 30'00 V
3. 63° 21'00 N – 20° 15'00 V
4. 63° 21'00 N – 20° 04'00 V
5. 63° 10'00 N – 20° 11'00 V
6. 63° 10'00 N – 21° 00'00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 22. október 2001.

Árni M. Mathiesen.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica