Sjávarútvegsráðuneyti

719/2001

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Vestfjarðamiðum án smáfiskaskilju. - Brottfallin

1. gr.
Veiðar með fiskibotnvörpu á svæði á Vestfjarðamiðum eru aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 278, 4. apríl 2001, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 67° 12'92 N – 22° 30'00 V
2. 67° 04'58 N – 22° 15'25 V
3. 66° 51'58 N – 24° 11'51 V
4. 66° 51'66 N – 24° 31'51 V
5. 66° 46'21 N – 24° 37'22 V
6. 66° 46'13 N – 24° 42'50 V
7. 66° 41'00 N – 24° 42'00 V
8. 66° 14'00 N – 25° 38'00 V
9. 66° 10'96 N – 25° 50'17 V
10. 66° 02'95 N – 26° 10'16 V
11. 65° 50'96 N – 26° 55'12 V
12. 66° 00'00 N – 26° 50'16 V
13. 66° 03'76 N – 26° 40'93 V
14. 66° 05'98 N – 26° 16'54 V
15. 66° 13'00 N – 25° 56'76 V
16. 66° 13'82 N – 25° 59'41 V
17. 66° 34'00 N – 25° 08'00 V
18. 66° 54'00 N – 24° 39'00 V
19. 66° 54'17 N – 24° 20'08 V
20. 67° 11'39 N – 23° 31'08 V



Þó eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 57'40 N – 24° 00'00 V
2. 67° 00'10 N – 23° 45'00 V
3. 67° 01'00 N – 23° 36'20 V
4. 66° 56'12 N – 23° 30'00 V
5. 66° 52'80 N – 24° 00'00 V



2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 29. september 2001 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma eru felldar úr gildi reglugerð nr. 859, 4. desember 2000, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Vestfjarðamiðum og reglugerð nr. 194, 12. mars 2001, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu án skilju á Vestfjörðum.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. september 2001.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica