Sjávarútvegsráðuneyti

550/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 270, 27. mars 2001 um veiðar úr úthafskarfastofninum 2001. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir 2. ml. 1. gr. kemur svohljóðandi málsliður: "Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæði 1 F og reiknast aflinn til aflamarks viðkomandi skips sbr. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar. Um þær veiðar gilda ákvæði reglugerðar nr. 12, 9. janúar 2001, um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO, 2001".


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 11. júlí 2001.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórir Skarphéðinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica