Sjávarútvegsráðuneyti

549/2001

Reglugerð um bann við línuveiðum við Suðausturland. - Brottfallin

549/2001

REGLUGERÐ
um bann við línuveiðum við Suðausturland.

1. gr.

Allar línuveiðar eru bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 63° 24'00 N - 18° 42'00 V
2. 63° 15'00 N - 18° 42'00 V
3. 63° 12'00 N - 18° 05'00 V
4. 63° 28'00 N - 15° 47'00 V
5. 63° 38'00 N - 14° 43'00 V
6. 63° 50'00 N - 14° 00'00 V
7. 64° 10'00 N - 14° 24'00 V
8. 63° 46'00 N - 16° 12'00 V
9. 64° 01'73 N - 16° 12'00 V

Að norðan, milli 1. og 9. punkts, afmarkast svæðið af fjöruborði.


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 16. júlí 2001 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 9. júlí 2001.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica