Sjávarútvegsráðuneyti

270/2001

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2001. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20N - 29°45V (við miðlínu milli Íslands og Grænlands).
2. 63°00N - 26°00V
3. 62°00N - 27°00V

og vestan línu, sem dregin er 180° réttvísandi úr punkti 3 að mörkum fiskveiðilandhelgi Íslands.

Ráðherra er heimilt að breyta umræddu veiðisvæði sé talin ástæða til vegna samsetningar afla.


2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Aðeins þeim íslenskum fiskiskipum sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr., er heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu.

Þá er skipum, sem fengið hafa heimild til veiða úr aflamarki annarra aðildarríkja NEAFC en Íslands, óheimilt að hefja veiðar skv. slíkri heimild fyrr en Fiskistofu hefur borist yfirlýsing frá viðkomandi aðildarríki NEAFC um slíkan rétt skipsins til veiða á úthafskarfa. Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skulu ákvæði 5. - 9. gr. gilda um þessar veiðar.


3. gr.

Á árinu 2001 er þeim íslensku fiskiskipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 32.000 lestir af úthafskarfa á svæði innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65°20 N - 29°45 V
2. 63°00 N - 26°00 V
3. 62°00 N - 27°00 V
4. 60°22 N - 24°20 V
5. 60°14 N - 29°02 V
6. 62°55 N - 32°00 V
7. 63°18 N - 30°46 V

Þá er þeim íslensku fiskiskipum sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu á árinu 2001, sbr. 2. gr. heimilt að veiða 13.000 lestir af úthafskarfa á svæði utan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 60°22 N - 24°20 V
2. 60°14 N - 29°02 V
3. 62°55 N - 32°00 V

Heimilt er að veiða úthafskarfa sem fjallað er um í 1. mgr. 3. gr. á því svæði sem fjallað er um í 2. mgr. 3. gr.

Fiskistofa skal úthluta hverju skipi aflamarki í úthafskarfa á grundvelli aflahlutdeildar þess, annars vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og hins vegar innan þess svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. í þeim hlutföllum sem í 1. og 2. mgr. þessarar greinar segir.


4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt l. nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Ákvæði 10. gr. l. nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð.


5. gr

Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., og úthafskarfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu hafsvæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvar Landhelgissgæslu og Fiskistofu:

Komutilkynning: Skylt er skipstjóra að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 6 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða veiðisvæðið sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,ENT" sem komutilkynning.
4. Kóði fyrir það veiðisvæði sem fara á inn á: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæði eða ,,GRL" fyrir fiskveiðilögsögu Grænlands.
5. Kallmerki skipsins.
6. Númer veiðiferðar.
7. Nafn skipsins.
8. Skipaskrárnúmer.
9. Umdæmisnúmer.
10. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum.
11. Áætlað aflamagn um borð í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
12. Dagsetning og tími.

Aflatilkynning: Hvern mánudag skal tilkynna eftirlitsstöðinni um heildarafla síðustu viku, þ.e. frá upphafi síðasta mánudags, til loka síðasta sunnudags, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Hafi skip verið skemur en viku á veiðisvæðinu skal gefa upp afla frá því skipið hóf veiðar á svæðinu. Ennfremur skal senda aflatilkynningu áður en farið er milli svæða sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,CAT" sem aflatilkynning.
4. Kóði fyrir það veiðisvæði sem aflatilkynningin á við: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr., "UKX" fyrir úthafskarfasvæði skv. 2. mgr. 3. gr.eða ,,GRL" fyrir fiskveiðilögsögu Grænlands.
5. Kallmerki skipsins.
6. Númer veiðiferðar.
7. Vikuafla í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða eða frá síðustu aflatilkynningu.
9. Dagsetning og tími.


Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur veiðisvæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða veiðisvæðið sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með ekki meira en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 6 klukkustunda fyrirvara. Jafnframt skal í tilkynningu tilgreindur áætlaður heildarafli frá því að veiðar hófust, eða frá síðustu aflatilkynningu miðað við afla upp úr sjó, aðgreindan eftir tegundum og einnig löndunarhöfn. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
1. Kóði viðtakanda: ,,ISL" fyrir íslensku eftirlitsstöðina.
2. Raðnúmer skeytisins.
3. Kóði fyrir tegund skeytisins: ,,EXI" sem lokatilkynning.
4. Kóði fyrir það veiðisvæði sem aflatilkynningin á við: ,,UKS" fyrir úthafskarfasvæði skv. 1. mgr. 3. gr., "UKX" fyrir úthafskarfasvæði samkv. 2. mgr. 3. gr. eða ,,GRL" fyrir fiskveiðilögsögu Grænlands.
5. Kallmerki skipsins.
6. Númer veiðiferðar.
7. Áætlaður heildarafli í kg, fært að næstu 100 kg miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum, sbr. 3. gr.
8. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða eða frá síðustu aflatilkynningu.
9. Löndunarhöfn.
10. Dagsetning og tími.

Ofangreindar tilkynningar skulu sendar með þeim hætti er lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).


6. gr.

Skylt er að halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum karfa um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.

Óheimilt er að nýta í sömu veiðiferð heimild til veiða skv. 2. mgr. 2. gr. þessarar reglugerðar og heimild til veiða skv. 3. mgr. 2. gr. hennar. Sé það gert eða ef afla er blandað saman sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar, skal aflinn reiknaður til aflamarks sem úthlutað er skv. 3. gr.

Skylt er að halda aðgreindum úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Sé úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. ekki haldið aðgreindum sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar skal aflinn reiknaður til aflamarks sem úthlutað er úr úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr.

Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 55% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 28% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinlausum og 26% nýtingu sé honum landað flökuðum roðlausum og beinlausum.

Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,60.


7. gr

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fislveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands. Einnig skal koma fram hve mikill hluti aflans er fenginn á hvoru svæðinu samkv. 1. og 2. mgr. 3. gr.


8. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.


9. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. mars 2001.

Davíð Oddsson.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica