Sjávarútvegsráðuneyti

228/2001

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu vestur af Surtsey. - Brottfallin

228/2001

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með fiskibotnvörpu vestur af Surtsey.

1. gr.

Frá og með 21. mars 2001 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu og dragnót óheimilar á svæði vestur af Surtsey, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 63°1400 N - 20°4000 V
2. 63°1000 N - 20°4000 V
3. 63°1000 N - 21°0000 V
4. 63°1650 N - 21°3500 V
5. 63°1900 N - 21°5100 V
6. 63°2400 N - 21°5100 V


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 19. mars 2001.

Árni M. Mathiesen.
Þorsteinn Geirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica