Sjávarútvegsráðuneyti

307/1998

Reglugerð um veiðar á gulllaxi. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um veiðar á gulllaxi.

1. gr.

                Frá og með 15. júní 1998 eru allar veiðar á gulllaxi í fiskveiðilandhelgi Íslands óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu.

                Leyfi til gulllaxveiða sem gefin eru út á fiskveiðiárinu 1997/1998 skulu gilda til loka þess. Eftir það skal fiskveiðiárinu skipt niður í þriggja mánaða leyfistímabil.

                Heimilt er ráðherra að fela Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til gulllaxveiða sé talin ástæða til að takmarka veiðarnar eða endurskipuleggja stjórnun þeirra.

2. gr.

                Gulllaxveiðar eru heimilar á svæðum undan Vestur- og Suðurlandi vestan 19°30'V og sunnan 66°00'N á dýpra vatni en 220 föðmum. Á svæði austan 19°30'V austur um að 64°30'N eru veiðar heimilar utan línu sem dregin er um eftirgreinda punkta:

                1.             63°19'N - 19°30'V

                2.             63°20'N - 19°20'V

                3.             63°15'N - 19°00'V

                4.             63°11'N - 18°10'V

                5.             63°11'N - 17°53'V

                6.             63°16'N - 17°10'V

                7.             63°20'N - 16°35'V

                8.             63°22'N - 16°29'V

                9.             63°24'N - 16°00'V

                10.           63°28'N - 15°41'V

                11.           63°29'N - 15°30'V

                12.           63°34'N - 15°00'V

                13.           63°35'N - 14°42'V

                14.           63°45'N - 14°12'V

                15.           63°58'N - 13°33'V

                16.           64°01'N - 13°10'V

                17.           64°30'N - 12°00'V

                Ofangreind heimild veitir skipinu aðeins rétt til að stunda veiðar á þeim svæðum, sem því er heimilt að stunda veiðar með botn- og flotvörpu, samkvæmt 3. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með þeim takmörkunum sem slíkum veiðum eru settar í sérstökum reglugerðum og skyndilokunum.

3. gr.

                Skipum sem leyfi Fiskistofu hafa til gulllaxveiða er heimilt að stunda gulllaxveiðar jafnhliða almennum togveiðum, en skipstjórar skulu tilkynna fyrir fram til Landhelgisgæslunnar hverju sinni, þegar þeir hefja veiðar á gulllaxi og hvar veiðarnar fari fram. Þá skulu þeir tilkynna þegar veiðum á gulllaxi er hætt hverju sinni.

4. gr.

                Við færslu afladagbókar skal tilgreind dagsetning, nákvæm staðsetning veiðisvæðis, afli og dýpi í hverju togi. Enn fremur skal allur aukaafli skráður nákvæmlega.

5. gr.

                Gulllaxsýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stk. af gulllaxi, sem valin eru af handahófi. Gæta skal þess að sýni sé tekið í öllum tilkynningaskyldureitum þar sem skipið stundar veiðar. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík, þegar að lokinni veiðiferð.

6. gr.

                Lágmarksstærð möskva í þeirri vörpu, sem notuð er til gulllaxveiða skal vera 80 mm, miðað við mælingu með hnútum (heilmöskvi), en 40 mm í poka.

7. gr.

                Fiskistofu er heimilt að svipta skip leyfi til gulllaxveiða vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar, ákvæðum leyfisbréfa til gulllaxveiða og ákvæðum laga og reglugerða, sem lúta að stjórn veiða og nýtingu nytjastofna. Missi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fellur jafnframt úr gildi leyfi til gulllaxveiða.

8. gr.

                Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út samkvæmt henni skal farið að hætti opinberra mála. Brot varða viðurlögum samkvæmt 17. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

9. gr.

                Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. maí 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Árni Kolbeinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica