Sjávarútvegsráðuneyti

496/2000

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2000/2001. - Brottfallin

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu veiðileyfa í atvinnuskyni gildir 5. gr. l. nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Um endurnýjun krókabáta fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar um veiðar krókabáta fiskveiðiárið 2000/2001.

 

Heildarafli og veiðitímabil.

2. gr.

Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2000 til 31. ágúst 2001 er leyfilegur heildarafli og úthlutað aflamark úr botnfisktegundum sem hér segir:

 

 

 

 

Leyfi-legur heildar-afli

Króka-bátar Lestir

Til jöfnunar skv. ÁkvTil brb. XXV Í 1. NR.38/1990

Til ráðstöf-unar Byggða-stofunar skv.ákv. til brb. XXVI í 1. nr.38/1990

Bætur vegn skerð-ingar í inn-fjarðarrækju skv.9. gr. 1. nr. 38/1990

Úthlutað aflamark 2000/2001

 

Tegund

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

Lestir

1.

Þorskur

220.000

30.355

3.000

1.406

1.211

184.028

2.

Ýsa

30.000

3.000

-

192

165

26.643

3.

Ufsi

30.000

1.000

-

192

165

28.643

4.

Steinbítur

13.000

3.000

-

78

67

9.855

5.

Karfi

57.000

-

-

-

-

57.000

6.

Grálúða

20.000

-

-

-

-

20.000

7.

Sandkoli

5.500

-

-

-

-

5.500

8.

Skrápflúra

5.000

-

-

-

-

5.000

9.

Skarkoli

4.000

-

-

-

-

4.000

10.

Þykkvalúra

1.400

-

-

-

-

1.400

11.

Langlúra

1.100

-

-

-

-

1.100

 

Afli samkvæmt ofangreindu miðast við óslægðan fisk með haus.

Aflamark einstakra skipa skal miðað við slægðan fisk með haus í öðrum tegundum en karfa.

Aflamark í sandkola og skrápflúru miðast við afla á svæði sem er sunnan 64°30'N við Austurland og sunnan við línu sem dregin er réttvísandi vestur úr Öndverðarnesi. Á öðrum svæðum eru veiðar á þessum tegundum ekki bundnar aflamarki.

Þá er ráðherra heimilt að úthluta viðbótaraflamarki, sem nemur allt að 55 lestum samtals af óslægðum þorski til báta, sem komu í stað annarra báta á tímabilinu frá 1. september 1997 til 17. mars 1999, enda sé að öðru leyti fullnægt skilyrðum settum í ákvæði XXV til bráðabirgða við lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.

 

3. gr.

Á tímabilinu 1. september 2000 til 31. ágúst 2001 er leyfilegur heildarafli úr neðangreindum tegundum sem hér segir:

 

Tegund            

Lestir

1.         Síld (íslensk sumargotssíld)            

110.000

2.         Úthafsrækja     

20.000

3.         Humar

1.200

4.         Hörpudiskur samtals     

9.300

þ.a. Breiðafjörður

8.000

þ.a. Húnaflói                

1.000

þ.a. Arnarfjörður                      

300

5.         Innfjarðarækja samtals              

2.200

            þ.a. Arnarfjörður          

400

            þ.a. Ísafjarðardjúp        

1.200

þ.a. Húnaflói    

0

þ.a. Skagafjörður                     

250

            þ.a. Skjálfandi              

0

þ.a. Öxarfjörður                         

350

 

Leyfilegur heildarafli af innfjarðarækju og úthafsrækju, skv. 2. og 5. tl., er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsóknastofnunarinnar um upphafsafla og verða þær endurskoðaðar fyrir rækjuvertíðina og síðan eftir áramótin 2000/2001.

Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2000 til og með 1. maí 2001.

Miðað er við að veiðitímabil innfjarðarækju standi frá 1. október 2000 til 1. maí 2001. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta upphafi og lokum vertíðar á tilgreindum veiðisvæðum innfjarðarækju, liggi fyrir umsögn um það frá Hafrannsóknastofnuninni.

Veiðitímabil og heildarafli annarra tegunda verður ákveðið sérstaklega með reglugerð.

 

Úthafsrækjuveiðisvæði.

4. gr.

Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð nr. 304, 3. maí 1999, um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl., og ennfremur rækja, sem veidd er samkvæmt sérstökum leyfum innan viðmiðunarlínu á Breiðafirði.

Úthafsrækja sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26° N og norðan 65°30'V telst ekki til aflamarks í úthafsrækju, enda staðfesti skipstjóri nákvæmlega í afladagbók hversu mikill afli sé fenginn á því svæði og tilkynni um veiðar og afla skv. 3. mgr. 12. gr. reglugerðar þessarar.

Til að úthafsrækjuafli teljist ekki til aflamarks sbr. 2. mgr. skulu skip ennfremur búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti. Skulu sendingar skv. ofangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla. Vanræksla á sjálfvirkum sendingum tilkynninga, rangar eða villandi upplýsingar í dagbók eða tilkynningum til Fiskistofu skulu leiða til þess, að allur rækjuafli skipsins í veiðiferðinni reiknist til aflamarks í úthafsrækju.

 

Skipting leyfilegs afla.

5. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa. Úthlutað aflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

Aflahlutdeild hvers skips skal vera sú sama og skipunum var úthlutað fyrir fiskveiðiárið 1. september 1999 til 31. ágúst 2000, að teknu tilliti til flutnings á aflahlutdeild milli skipa.

Áður en leyfðum heildarafla er skipt á grundvelli aflahlutdeildar er eftirtalið dregið frá:

1.         Áætlaður afli krókabáta skv. 6. gr.

2.         Aflaheimildir, sem nota skal til bóta vegna fyrirsjáanlegrar skerðingar í aflamarki skv. 2. gr. sbr. 9. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. 3.           Aflaheimildir sem Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar skv. ákvæði til bráðabirgða XXVI í lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.4.     Aflaheimildir sem úthluta skal skv. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXV í lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Krókabátar.

6. gr.

Bátar, sem eingöngu stunda veiðar með handfærum eða línu og handfærum, samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum kallast krókabátar, veiðileyfi þeirra krókaleyfi og veiðar þeirra krókaveiðar. Um veiðar krókabáta gilda ákvæði reglugerðar um veiðar krókabáta fiskveiðiárið 2000/2001.

 

Útreikningur aflamarks.

7. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92 og steinbíts með 0,9.

Þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila í magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92 en steinbíts með 0,9.

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Sé botnfiskafli, sem fluttur er óunninn á erlendan markað, ekki endanlega vigtaður hér á landi og skráður í aflaskráningarkerfið Lóðs fyrir útflutning, samkvæmt reglugerð nr. 522/1998, um vigtun sjávarafla, skal reikna aflann með álagi til aflamarks. Skal álagið vera 15% á þorsk, en 10% á aðrar botnfisktegundir, sem sæta ákvæðum um leyfilegan heildarafla samkvæmt 2. gr.

Þorskur og ufsi styttri en 50 cm, ýsa styttri en 45 cm og karfi styttri en 33 cm teljast ekki að hálfu til aflamarks, enda fari þorskur undir 50 cm ekki yfir 7% af þorskafla í veiðiferð og afli annarra tegunda samkvæmt þessari málsgrein ekki yfir 10% af viðkomandi tegund. Heimild samkvæmt þessari málsgrein er bundin þeim skilyrðum að afla undir tilgreindum stærðum sbr. 1. málslið, sé haldið aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni, sem annast endanlega vigtun aflans innanlands. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda ekki um afla, sem frystur er um borð í veiðiskipi, nema um heilfrystan fisk sé að ræða. Allur fiskur, sem veiddur er á handfæri telst til aflamarks.

 

8. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2000 eða síðar til fiskveiðiársins 1. september 2000 til 31. ágúst 2001, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

 

Framsal og sameining veiðiheimilda.

9. gr.

Heimilt er að flytja aflamark milli skipa án undangenginna viðskipta á Kvótaþingi í eftirtöldum tilvikum:

1.         Þegar aflamark er flutt milli skipa í eigu sama aðila, einstaklings eða lögaðila.2.     Þegar um er að ræða jöfn skipti miðað við meðaltalsviðskiptaverð viðkomandi tegunda á Kvótaþingi í síðastliðinni viku.3.            Þegar um er að ræða flutning aflamarks af tegund sem ráðherra hefur með reglugerð undanþegið viðskiptaskyldu á Kvótaþingi.4.  Þegar um er að ræða krókaflamark.

 

Krókaflamark verður ekki flutt til báts með aðra gerð veiðileyfis og aðeins til báts, sem er undir 6 brl. eða 6 brúttótonnum.

Tilkynna skal Fiskistofu fyrirfram um flutning aflamarks samkvæmt 1. mgr. og öðlast hann ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest flutninginn. Eigandi þess skips sem aflamarkið er flutt frá skal undirrita beiðni um flutning. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda einnig um flutning á þorskaflahámarki eftir því sem við á.

Annar flutningur aflamarks milli skipa en um getur í 1. mgr. er óheimill nema að undangengnum viðskiptum á Kvótaþingi. Fer um hann samkvæmt lögum um Kvótaþing nr. 11/1998.

Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips samkvæmt 11. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Tefjist skip frá veiðum í sex mánuði eða lengur innan fiskveiðiárs, vegna tjóns eða meiriháttar bilana, hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar, samkvæmt þessari grein.

Á hverju fiskveiðiári er einungis heimilt að flytja af fiskiskipi aflamark, umfram aflamark sem flutt er til skips sem nemur 50% af samanlögðu aflamarki í þorskígildum talið, sem skipi var úthlutað í upphafi fiskveiðiárs á grundvelli aflahlutdeildar þess. Heimilt er með samþykki Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings aflamarks í þeim tilvikum að um breytingar á skipastól viðkomandi útgerðar sé að ræða og aflahlutdeildin sé jafnframt flutt milli viðkomandi skipa.

Umsóknir um flutning aflamarks milli fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2000/2001 skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. ágúst 2001.

 

10. gr.

Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Krókaflahlutdeild verður ekki flutt til báts með aðra gerð veiðileyfis og aðeins til báts, sem er undir 6 brl. eða 6 brúttótonnum. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá ásamt samþykki þeirra aðila er þinglýst veð áttu í skipinu 1. janúar 1991. Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2001. Berist umsókn eftir 31. júlí 2001, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks fiskveiðiárið 2001/2002.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild eftirtalinna tegunda en sem hér segir: Þorskur og ýsa 10%, ufsi, karfi, grálúða, síld, loðna og úthafsrækja 20%. Um takmörkun á hámarksaflahlutdeild vísast að öðru leyti til 11. gr. a og 11. gr. b í lögum nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.

 

 

Þorskígildisstuðlar.

11. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2000 til 31. ágúst 2001 eru þessir: þorskur 1,00, ýsa 1,15, ufsi 0,50, karfi 0,55, steinbítur 0,65, grálúða 1,65, skarkoli 1,25, langlúra 0,70, þykkvalúra 1,20, skrápflúra 0,50, sandkoli 0,50, loðna 0,03, síld 0,06, norsk-íslensk síld 0,04, humar (slitinn) 6,85, rækja 0,90 og hörpudiskur 0,30. Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar, sbr. 5. og 7. mgr. 12. gr. og varðandi færslu milli tegunda, sbr. 10. gr. laga nr. 38/1990, eftir því sem við á.

 

 

Ýmis ákvæði.

12. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki viðkomið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerðar nr. 522/1998 um vigtun sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 4. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 4. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski og makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni samkvæmt 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

 

13. gr.

Útgerðum skipa með fullvinnsluleyfi er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur sem Fiskistofa leggur til sbr. reglugerð nr. 303/1999, um afladagbækur.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður.

 

14. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í tómstundum enda séu engin veiðarfæri um borð, önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar eða veiðistangir. Óheimilt er að selja afla eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst. Einnig skal tilkynna Fiskistofu, hvenær slíkri veiðiferð lauk strax að henni lokinni. Í tilkynningu skal jafnframt koma fram áætlað aflamagn, sundurliðað eftir tegundum. Tilkynningar þessar skulu berast til Fiskistofu með skriflegum hætti (símbréfi).

 

15. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum IV. kafla laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, sbr. V. kafla laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Um sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt IV. kafla laga nr. 38, 15. maí 1990 um stjórn fiskveiða, sbr. IV. kafla laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992.

 

16. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, laga nr. 57, 3. júní 1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda 1. september 2000 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 431, 15. júní 2000, um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2000/2001.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. júlí 2000.

 

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica