Sjávarútvegsráðuneyti

445/1999

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 150, 6. mars 1998, um mælingar á fiskilestum. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir orðunum "samningssvæði NAFO" í 1. gr. bætist "utan lögsagna á samningssvæði NEAFC og".

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. júlí 1999.

Árni M. Mathiesen.

Þorsteinn Geirsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica