Sjávarútvegsráðuneyti

12/2001

Reglugerð um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO, 2001. - Brottfallin

I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.

Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á svæði sem nefnt er "samningssvæðið" í samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar í Norðvestur-Atlantshafi, sbr. auglýsingu nr. 17 í C-deild Stjórnartíðinda 29. desember 1978. Vísað er til viðauka III við þann samning um skiptingu þess svæðis í vísindaleg og tölfræðileg undirsvæði (tilgreind með tölustöfum), deilisvæði (hlutar undirsvæðis tilgreindir með tölustaf og stórum bókstaf) og undirdeilisvæði (hlutar deilisvæðis tilgreindir með litlum bókstaf) sem meðfylgjandi mynd í viðauka I sýnir. Veiðar á samningssvæðinu eru óheimilar íslenskum skipum, án sérstaks leyfis Fiskistofu. Skulu þau leyfi bundin þeim skilyrðum sem nauðsynleg eru til að fullnægja skuldbindingum Íslands á grundvelli framangreinds samnings.


2. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæðinu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að hefja veiðar fyrr en starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa staðfest til Fiskistofu að ofangreindur búnaður sé um borð og starfi eðlilega.


3. gr.

Heimilt er að framselja úthlutaða aflahlutdeild og aflamark milli fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Ákvæði 10. gr. og 5. og 7. mgr. 12 gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er samkvæmt þessari reglugerð.

Heimilt er Fiskistofu að afturkalla fyrirvaralaust leyfi skipa til veiða úr þeim stofnum sem aflahlutdeild eða aflamarki hefur ekki verið úthlutað úr.


4. gr.

Skipstjóri skips sem heldur til veiða á samningssvæðinu skal tilkynna það Fiskistofu með skeyti eða símbréfi, við upphaf hverrar veiðiferðar. Í tilkynningunni skal koma fram nafn skips og skipaskrárnúmer, nafn eiganda og útgerðaraðila, nafn skipstjóra, á hvaða deilisvæði sé fyrirhugað að stunda veiðar og hvenær áætlað er að veiðar hefjist. Einnig skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu þegar veiðum lýkur og komi í þeirri tilkynningu fram nafn skips og skipaskrárnúmer, nafn skipstjóra, afli um borð og fyrirhugaður löndunarstaður og -tími.

Skylt er útgerð skips að tilkynna til Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda og í mesta lagi 48 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á samningssvæðið. Í tilkynningu skal tilgreina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins, áætlaða komu þess inn á svæðið svo og afla um borð. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og hann aðgreindur eftir tegundum.

Þegar skip yfirgefur samningssvæðið skal útgerð þess tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara um slíkt. Skal í tilkynningu tilgreina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins svo og afla um borð í skipinu sem veiddur hefur verið á samningssvæðinu. Enn fremur skal koma fram væntanleg löndunarhöfn og áætlaður komutími til hafnar. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og skal hann aðgreindur eftir tegundum.

Ef afla skips skal umskipað á meðan það er statt á samningssvæðinu skal útgerð þess tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara um slíkt. Skal í tilkynningu greina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins svo og afla þann sem umskipa skal. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og skal hann aðgreindur eftir tegundum. Óheimilt er að skipa um borð í íslensk fiskiskip hvers konar afla af samningssvæðinu sem veiddur er af skipum er sigla undir fána ríkis sem ekki er aðili að NAFO.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. málslið 2. gr., bilar, skal gert við hann við fyrstu hentugleika. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 12 klukkustunda fresti til Landhelgisgæslunnar, og tilkynna áður en skip fer af einu deilisvæði til annars.


5. gr.

Skylt er þeim er veiða á samningssvæðinu eða hafa stundað veiðar á því að veita aðstoð sína til þess að eftirlitsmenn samningsríkja NAFO, sem sýnt geta fram á með skilríkjum að þeir séu til þess bærir, geti komist um borð eftir að skip eða þyrla sem þeir eru um borð í hefur gefið viðeigandi merki á alþjóðlegu merkjamáli um að þeir æski þess að koma um borð.

Um borð í hverju skipi skal vera stigi sem uppfyllir kröfur NAFO og önnur áhöld sem gera eftirlitsmönnum kleift að komast um borð með skjótum og öruggum hætti. Þrep stigans skulu gerð úr harðviði eða öðru sambærilegu efni. Þau skulu vera a.m.k. 480 mm breið, 115 mm djúp og 25 mm þykk og vera með jöfnu millibil sem ekki má vera minna en 300 mm og ekki meira en 380 mm.

Skipstjórum er skylt að veita eftirlitsmönnum endurgjaldslaust alla þá starfsaðstöðu og aðstoð sem þeim er nauðsynleg í starfi sínu, m.a. greiðan aðgang að fjarskiptatækjum, staðsetningartækjum og kortum.

Eftirlitsmönnum skal leyft að skoða og mæla veiðarfæri skipsins og afla til að ganga úr skugga um að reglur NAFO séu ekki brotnar. Þá skal eftirlitsmönnum gert kleift að skoða skjöl skipsins, skrifa í þau athugasemdir sínar um meint brot og gera skýrslu um skoðunina.


6. gr.

Hverju skipi er óheimilt að stunda veiðar á samningssvæðinu, nema eftirlitsmaður á vegum Fiskistofu sé um borð í þeim tilfellum sem stjórnvöld hafa á grundvelli milliríkjasamnings eða með öðrum skuldbindandi hætti samið um að eftirliti skuli hagað með þeim hætti, sbr. 4. mgr. 4. gr. laga nr. 33, 5. maí 2000, um veiðieftirlitsgjald. Skal útgerð sjá eftirlitsmönnum á vegum Fiskistofu fyrir fæði og aðstöðu án endurgjalds meðan þeir eru við eftirlitsstörf um borð. Útgerðir skulu, fyrir þann tíma sem skipið er á samningssvæðinu, greiða eftirlitskostnað, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 33, 5. maí 2000, um veiðieftirlitsgjald.

Útgerð skips skal tilkynna Fiskistofu ósk sína um að veiðieftirlitsmaður verði um borð í skipinu a.m.k. 7 dögum fyrir brottför þess frá Íslandi en a.m.k. 10 dögum fyrir brottför sé um að ræða brottför frá höfn utan Íslands.


7. gr.

Skipstjórar skulu skrá í afladagbækur sem Fiskistofa leggur til, nákvæmar skýrslur um veiðarnar. Einnig skulu skipstjórar skrá upplýsingar í Veiðidagbók NAFO og skal í lok veiðiferðar afhenda veiðieftirlitsmanni afrit af færslum fyrir viðkomandi veiðiferð (eyðublað b).


8. gr.

Gerð og búnaður veiðarfæra skal vera skv. reglum þeim er NAFO hefur sett.


II. KAFLI
Rækjuveiðar á Flæmingjagrunni.
9. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda rækjuveiðar á Flæmingjagrunni, sem hafa aflamark í rækju á því svæði. Í reglugerð þessari kallast eftirfarandi hafsvæði Flæmingjagrunn: Allt deilisvæði 3M ásamt þeim hluta deilisvæðis 3L sem er austan 46°40´V og sunnan 47°20´N.

Á árinu 2001 er íslenskum skipum sem veiðileyfi fá á Flæmingjagrunni, sbr. 2. gr., heimilt að veiða samtals 10.100 lestir af rækju á því hafsvæði. Af umræddu heildarmagni skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki í rækju á Flæmingjagrunni á grundvelli aflahlutdeildar þess í þessum stofni.

Þegar rækja veidd á Flæmingjagrunni er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0.90.


10. gr.

Skipstjóri skips sem heldur til rækjuveiða á Flæmingjagrunni skal tilkynna það Fiskistofu með skeyti eða símbréfi og hvenær áætlað er að veiðar hefjist. Einnig skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu þegar rækjuveiðum á Flæmingjagrunni lýkur.
Að öðru leyti fer um tilkynningar samkvæmt 4. gr.


11. gr.

Ef samanlagður aukaafli allra tegunda sem eru undir stjórn NAFO verður meiri en 5% af þunga í hali er skylt að yfirgefa veiðistað. Ekki er heimilt að hefja veiðar innan 5 sjómílna frá þeim stað.


12. gr.

Við ákvörðun aflamagns af rækju sem veidd er á Flæmingjagrunni, til aflamarks, skal fara samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.

Skipstjóri skal tryggja að a.m.k. tvisvar á sólarhring þá daga sem skip er að veiðum, sé valið af handahófi og vigtað úrtak hverrar afurðar þannig að það gefi sem réttasta mynd af magni afurða. Skal meðalþyngd úrtaka ásamt fjölda eininga lögð til grundvallar ákvörðunar til aflamarks. Skal fjöldi eininga í úrtaki vera samtals 20 af fjölda unninna eininga hverrar afurðar sem unninn er á sólarhring en þó þarf fjöldi eininga í úrtaki aldrei að vera meiri en 5% af fjölda eininga í hverri afurð á sólarhring.

Við vigtun á forsoðinni rækju sem fryst er í öskjur er heimilt að draga þunga umbúða frá vigtuðu magni.

Við vigtun á hrárækju sem fryst er í öskjur er heimilt að draga þunga umbúða auk 10% vegna vatns í afla frá vigtuðu magni.

Við vigtun á iðnaðarrækju sem lausfryst er í pokum eða fryst í blokkir, er heimilt að draga þunga umbúða auk 9% vegna vatns í afla frá vigtuðu magni.

Í veiðidagbók skal daglega skrá heildarmagn hverrar afurðar að frádregnum þunga umbúða og vatns. Þegar að lokinni veiðiferð og vigtun aflans skal senda Fiskistofu upplýsingar um aflamagn í veiðiferðinni á því formi sem Fiskistofa leggur til.

Landi fiskiskip eigin afla á Íslandi skal hann endanlega veginn samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 522, 18. ágúst 1998, um vigtun sjávarafla, sbr. 22. og 23. gr. Sé rækjuafli fluttur til vinnslu á Íslandi með flutningaskipi eða öðrum hætti skal hann á sama hátt endurvigtaður á ákvörðunarstað og Fiskistofu sendar endurvigtunarnótur strax að vigtun lokinni.


13. gr.

Við útreikning á afla til aflamarks fyrir rækju á Flæmingjagrunni fer eftir reglugerð þessari, hvort sem landað er úr veiðiskipi á Íslandi eða erlendis.


14. gr.

Óheimilt er að nota vörpu með minni möskva en 40 mm, mælt með tveggja mm þykkri stiku með 5 kg átaki á þann hátt sem reglur NAFO kveða á um. Þá er óheimilt að hafa um borð slík veiðarfæri án leyfis Fiskistofu. Gerð og búnaður veiðarfæra skal að öðru leyti vera skv. reglum þeim er NAFO hefur sett.


15. gr.

Skylt er að nota seiðaskilju við veiðarnar og má bil milli rimla ekki vera meira en 22 mm.


III. KAFLI
Rækjuveiðar á deilisvæði 3L.
16. gr.

Rækjuveiðar eru heimilar á þeim hluta deilisvæðis 3L sem er austan línu sem liggur milli 46°00N/47°53V, 46°40N/47°20V og 47°19N/47°43V á tímabilunum 1. janúar - 31. mars, 1. júlí - 14. september og 1 desember - 31. desember 2001. Veiðar á svæðinu mega aðeins fara fram á meira en 200 metra dýpi. Veiðar á svæðinu eru aðeins heimilar þeim íslensku skipum sem hafa aflamark í rækju á svæðinu. Einungis eitt íslenskt fiskiskip má vera á veiðum á svæðinu hverju sinni. Hafi íslenskt skip tilkynnt sig inn á svæðið, sbr. 18. gr., er öðru íslensku skipi óheimilt að hefja veiðar á svæðinu án samþykkis Fiskistofu.


17. gr.

Á árinu 2001 er íslenskum skipum sem fá veiðileyfi á deilisvæði 3L, sbr. 16. gr., heimilt að veiða 67 lestir af rækju á því hafsvæði. Fiskistofa skal úthluta aflamarki vegna ársins 2001 milli skipa í samræmi við aflahlutdeild þeirra í rækju á Flæmingjagrunni.

Þegar rækja veidd á deilisvæði 3L er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,90.


18. gr.

Skip sem hyggst stunda veiðar á deilisvæði 3L, sbr. 16. gr., skal tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda og í mesta lagi 48 klukkustunda fyrirvara um siglingu inn á svæðið og með sama fyrirvara tilkynna Fiskistofu þegar siglt er út af svæðinu eftir veiðar á því. Í tilkynningu skal tilgreina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins, áætlaða komu þess eða brottför af svæðinu og magn rækjuafla um borð. Tilkynna skal Fiskistofu þegar veiðum er lokið á deilisvæði 3L, sbr. 16. gr.

Að öðru leyti fer um tilkynningar samkvæmt 4. gr.


19. gr.

Ef samanlagður aukaafli í veiðum á rækju á deilisvæði 3L allra tegunda sem eru undir stjórn NAFO verður meiri en 2,5% af þunga í hali er skylt að yfirgefa veiðistað. Ekki er heimilt að hefja veiðar innan 5 sjómílna frá þeim stað.


20. gr.

Allur rækjuafli sem veiddur er á deilisvæði 3L, sbr. 16. gr., skal greinilega auðkenndur.


21. gr.

Við veiðar á deilisvæði 3L, sbr. 16. gr., skal lengd keðju sem festir bobbinga eða sambærilegan búnað við troll vera a.m.k. 72 cm.


IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
22. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.


23. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 6, 6. janúar 2000, um veiðar á samningssvæði NAFO 2000, með síðari breytingum.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 9. janúar 2001.

Árni M. Mathiesen.
Þorsteinn Geirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica