Sjávarútvegsráðuneyti

276/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 304, 3. maí 1999, um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 304, 3. maí 1999,

um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar.

1. gr.

Í stað orðanna: "15. júlí til og með 31. október" í 2. gr. reglugerðarinnar komi: 1. maí til og með 15. október.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 2. maí 2000.

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica