Sjávarútvegsráðuneyti

574/2000

Reglugerð um bann við rækjuveiðum fyrir Norðurlandi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 20. ágúst 2000 eru allar veiðar með rækjuvörpu bannaðar á svæði fyrir Norðurlandi milli 16°00´V og 18°00´V utan viðmiðunarlínu, sbr. 5. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að stunda rækjuveiðar á ofangreindu svæði, sé rækjuvarpan búin smárækjuskilju í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 253, 17. apríl 1997, um gerð og búnað smárækjuskilju með síðari breytingum.

 

2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 11. ágúst 2000.

 

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica