Sjávarútvegsráðuneyti

6/2000

Reglugerð um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO, 2000 - Brottfallin

REGLUGERÐ

um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs

fiskveiðistofnunarinnar, NAFO, 2000.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á svæði sem nefnt er _samningssvæðið" í samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar í Norðvestur-Atlantshafi, sbr. auglýsingu nr. 17 í C-deild Stjórnartíðinda 29. desember 1978. Vísað er til viðauka III við þann samning um skiptingu þess svæðis í vísindaleg og tölfræðileg undirsvæði (tilgreind með tölustöfum), deilisvæði (hlutar undirsvæðis tilgreindir með tölustaf og stórum bókstaf) og undirdeilisvæði (hlutar deilisvæðis tilgreindir með litlum bókstaf) sem meðfylgjandi mynd í viðauka I sýnir. Veiðar á samningssvæðinu eru óheimilar íslenskum skipum, án sérstaks leyfis Fiskistofu. Skulu þau leyfi bundin þeim skilyrðum sem nauðsynleg eru til að fullnægja skuldbindingum Íslands á grundvelli framangreinds samnings.

II. KAFLI

Rækjuveiðar á Flæmingjagrunni.

2. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda rækjuveiðar á Flæmingjagrunni, sem hafa aflamark í rækju á því svæði. Enn fremur skulu þau búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að hefja veiðar fyrr en starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa staðfest til Fiskistofu að ofangreindur búnaður sé um borð og starfi eðlilega. Í reglugerð þessari kallast eftirfarandi hafsvæði Flæmingjagrunn: Allt deilisvæði 3M ásamt þeim hluta deilisvæðis 3L sem er austan 46°40'V og sunnan 47°20'N.

3. gr.

Á árinu 2000 er íslenskum skipum sem veiðileyfi fá á Flæmingjagrunni, sbr. 2. gr., heimilt að veiða samtals 9.300 lestir af rækju á því hafsvæði. Ákvörðun um heildarmagn mun sæta endurskoðun síðar á árinu 2000. Af umræddu heildarmagni skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki í rækju á Flæmingjagrunni á grundvelli aflahlutdeildar þess í þessum stofni.

4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Ákvæði 10. gr. og 5. og 7. mgr. 12. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í rækju samkvæmt þessari reglugerð.

Þegar rækja veidd á Flæmingjagrunni er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 1,05.

5. gr.

Skipstjóri skips sem heldur til rækjuveiða á Flæmingjagrunni skal tilkynna það Fiskistofu með skeyti eða símbréfi, við upphaf hverrar veiðiferðar. Í tilkynningunni skal koma fram nafn skips og skipaskrárnúmer, nafn eiganda og útgerðaraðila, nafn skipstjóra, að fyrirhugað sé að stunda veiðar á deilisvæði 3M eða á þeim hluta deilisvæðis 3L sem telst til Flæmingjagrunns skv. 2. gr. og hvenær áætlað er að veiðar hefjist. Einnig skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu þegar veiðum lýkur og komi í þeirri tilkynningu fram nafn skips og skipaskrárnúmer, nafn skipstjóra, afli um borð og fyrirhugaður löndunarstaður og -tími.

Skylt er útgerð skips að tilkynna til Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda og í mesta lagi 48 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á samningssvæðið. Í tilkynningu skal tilgreina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins, áætlaða komu þess inn á svæðið svo og afla um borð. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og hann aðgreindur eftir tegundum.

Þegar skip yfirgefur samningssvæðið skal útgerð þess tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara um slíkt. Skal í tilkynningu tilgreina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins svo og afla um borð í skipinu sem veiddur hefur verið á samningssvæðinu. Enn fremur skal koma fram væntanleg löndunarhöfn og áætlaður komutími til hafnar. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og skal hann aðgreindur eftir tegundum.

Ef afla skips skal umskipað á meðan það er statt á samningssvæðinu skal útgerð þess tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara um slíkt. Skal í tilkynningu greina tíma, dagsetningu og staðsetningu skipsins svo og afla þann sem umskipa skal. Afli skal tilgreindur í hundruðum kílóa miðað við afla upp úr sjó og skal hann aðgreindur eftir tegundum. Óheimilt er að skipa um borð í íslensk fiskiskip hvers konar afla af samningssvæðinu sem veiddur er af skipum er sigla undir fána ríkis sem ekki er aðili að NAFO.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 2. málslið 2. gr., bilar, skal gert við hann við fyrstu hentugleika. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 12 klukkustunda fresti til Landhelgisgæslunnar, og tilkynna áður en skip fer af einu deilisvæði til annars.

6. gr.

Skylt er þeim er veiða á samningssvæðinu eða hafa stundað veiðar á því að veita aðstoð sína til þess að eftirlitsmenn samningsríkja NAFO, sem sýnt geta fram á með skilríkjum að þeir séu til þess bærir, geti komist um borð eftir að skip eða þyrla sem þeir eru um borð í hefur gefið viðeigandi merki á alþjóðlegu merkjamáli um að þeir æski þess að koma um borð.

Um borð í hverju skipi skal vera stigi sem uppfyllir kröfur NAFO og önnur áhöld sem gera eftirlitsmönnum kleift að komast um borð með skjótum og öruggum hætti. Þrep stigans skulu gerð úr harðviði eða öðru sambærilegu efni. Þau skulu vera a.m.k. 480 mm breið, 115 mm djúp og 25 mm þykk og vera með jöfnu millibili sem ekki má vera minna en 300 mm og ekki meira en 380 mm.

Skipstjórum er skylt að veita eftirlitsmönnum endurgjaldslaust alla þá starfsaðstöðu og aðstoð sem þeim er nauðsynleg í starfi sínu, m.a. greiðan aðgang að fjarskiptatækjum, staðsetningartækjum og kortum.

Eftirlitsmönnum skal leyft að skoða og mæla veiðarfæri skipsins og afla til að ganga úr skugga um að farið sé eftir reglum þeim er NAFO hefur sett. Þá skal eftirlitsmönnum gert kleift að skoða skjöl skipsins, skrifa í þau athugasemdir sínar um meint brot og gera skýrslu um skoðunina.

7. gr.

Hverju skipi er óheimilt að stunda veiðar á samningssvæðinu, nema eftirlitsmaður á vegum Fiskistofu sé um borð. Skal útgerð sjá eftirlitsmönnum á vegum Fiskistofu fyrir fæði og aðstöðu án endurgjalds meðan þeir eru við eftirlitsstörf um borð. Útgerðir skulu, fyrir þann tíma sem skipið er á deilisvæði 3M, greiða eftirlitskostnað sbr. 7. mgr. 8. gr. laga nr. 151, 26. maí 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

Útgerð skips skal tilkynna Fiskistofu ósk sína um að veiðieftirlitsmaður verði um borð í skipinu a.m.k. 7 dögum fyrir brottför þess frá Íslandi en a.m.k. 10 dögum fyrir brottför sé um að ræða brottför frá höfn utan Íslands.

8. gr.

Skipstjórar skulu skrá í afladagbækur sem Fiskistofa leggur til, nákvæmar skýrslur um veiðarnar. Einnig skulu skipstjórar skrá upplýsingar í Veiðidagbók NAFO og skal í lok veiðiferðar afhenda veiðieftirlitsmanni afrit af færslum fyrir viðkomandi veiðiferð (eyðu-blað b).

9. gr.

Við ákvörðun á afla af rækju, sem veidd er á Flæmingjagrunni, til aflamarks skal fara skv. ákvæðum þessarar greinar.

Varðandi hrárækju og forsoðna rækju sem fryst er í öskjur skal fyrir hverja afurð miða við fjölda þeirra og söluvigt.

Varðandi rækju sem fryst er í pokum eða blokkir, iðnaðarrækju, skal daglega velja og vigta úrtak þannig að það gefi sem réttasta mynd af framleiðslunni. Með vigtun úrtaksins skal finna meðalþyngd hverrar einingar, að frádregnum þunga umbúða.

Í veiðidagbók skal daglega skrá heildarafla að teknu tilliti til meðaltalsþyngdar hverrar einingar og fjölda eininga, sbr. 2. og 3. mgr.

10. gr.

Við útreikning á afla til aflamarks fyrir rækju á Flæmingjagrunni fer eftir reglugerð þessari, hvort sem landað er úr veiðiskipi á Íslandi eða erlendis.

11. gr.

Óheimilt er að nota vörpu með minni möskva en 40 mm, mælt með tveggja mm þykkri stiku með 5 kg átaki á þann hátt sem reglur NAFO kveða á um. Þá er óheimilt að hafa um borð slík veiðarfæri án leyfis Fiskistofu. Gerð og búnaður veiðarfæra skal að öðru leyti vera skv. reglum þeim er NAFO hefur sett.

12. gr.

Skylt er að nota seiðaskilju við veiðarnar og má bil milli rimla ekki vera meira en 22 mm.

13. gr.

Ef samanlagður aukaafli allra tegunda sem eru undir stjórn NAFO verður meiri en 5% af þunga í hali er skylt að yfirgefa veiðistað. Ekki er heimilt að hefja veiðar innan 5 sjómílna frá þeim stað.

III. KAFLI

Ýmis ákvæði.

14. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. er sjávarútvegsráðuneytinu heimilt að veita leyfi til rækjuveiða á deilisvæðum 3L, 3N og 3O ef um er að ræða skip sem tekur þátt í rannsóknum sem veiðar eru nauðsynlegur þáttur í.

15. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

16. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 67, 27. janúar 1999, um veiðar á samningssvæði NAFO 1999.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 6. janúar 2000.

Árni M. Mathiesen.

Þorsteinn Geirsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica