Sjávarútvegsráðuneyti

606/2005

Reglugerð um bann við kolmunnaveiðum úti fyrir Austfjörðum. - Brottfallin

1. gr.
Frá og með 28. júní 2005, eru allar veiðar á kolmunna bannaðar út af Austfjörðum á svæðum sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

Vestur af Þórsbanka:
1. 64° 03´60 N – 12° 09´00 V
2. 63° 46´00 N – 12° 09´00 V
3. 63° 26´00 N – 11° 55´00 V
4. 63° 17´00 N – 11° 20´00 V
5. 63° 07´00 N – 12° 29´00 V
6. 63° 45´50 N – 12° 56´70 V
7. 63° 53´44 N – 13° 25´00 V
8. 64° 00´00 N – 13° 07´00 V
9. 64° 04´33 N – 12° 57´39 V


Norðaustur af Þórsbanka:
1. 64° 37´00 N – 10° 51´00 V
2. 64° 37´00 N – 10° 20´00 V
3. 64° 04´00 N – 10° 20´00 V
4. 64° 04´00 N – 11° 04´00 V
5. 64° 17´00 N – 10° 34´00 V


2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 24. júní 2005.


F. h. r.
Þórður Eyþórsson.
Guðrún Eyjólfsdóttir.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica