Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

234/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 601, 8. ágúst 2003, um nýtingu afla og aukaafurða. - Brottfallin

1. gr.

Önnur málsgrein 2. gr. orðist svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skylt að hirða og koma með að landi öll þorsk- og ufsahrogn. Þá er og skylt að hirða og koma með að landi hausa og allan afskurð sem fellur til við vinnslu á makríl og afskurð sem fellur til við vinnslu á íslenskri sumargotssíld. Jafnframt er skylt að hirða og koma með að landi allan afskurð sem fellur til við snyrtingu á þorsk-, ýsu- og ufsaflökum um borði í skipum sem vinna afla um borð.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. gr. laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. mars 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica