Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

909/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 601, 8. ágúst 2003, um nýtingu afla og aukaafurða. - Brottfallin

1. gr.

Lokamálsliður 2. gr. orðist svo:

Þá er og skylt að hirða og koma með að landi allan afskurð, sem fellur til við vinnslu á íslenskri sumargotssíld og við snyrtingu á þorsk-, ýsu- og ufsaflökum um borð í fullvinnsluskipum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. gr. laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. nóvember 2009.

F. h. r.
Hrefna Gísladóttir.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica