Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

548/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 224, 14. mars 2006, um vigtun og skráningu sjávarafla, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Lokamálsliður 3. mgr. 47. gr. orðist svo:

Upplýsingar um lágmarksverð skulu birtar á uppboðsvef við upphaf uppboðs.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, til þess að öðlast gildi 29. júní 2009, og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. júní 2009.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica