Sjávarútvegsráðuneyti

875/2005

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Víkurál. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 7. október 2005 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á svæði í Víkuráli, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 04´00 N – 26° 29´00 V

2. 66° 00´00 N – 26° 26´00 V

3. 65° 57´26 N – 26° 33´57 V

4. 65° 44´00 N – 26° 35´00 V

5. 65° 49´00 N – 26° 57´00 V

6. 66° 00´00 N – 26° 50´00 V


Þrátt fyrir ofangreint bann eru veiðar heimilar frá kl. 20.00 að kvöldi til kl. 08.00 að morgni.


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 790, 29. ágúst 2005, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Víkurál.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 4. október 2005.


F. h. r.

Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica