Sjávarútvegsráðuneyti

719/2005

Reglugerð um línuívilnun. - Brottfallin

Felld brott með:

1. gr.

Frá og með 1. september 2005 má við línuveiðar dagróðrabáta í einstökum róðrum landa 16% umfram þann afla í þorski, ýsu og steinbít sem reiknast til aflamarks þeirra. Heimild þessi er bundin eftirfarandi skilyrðum:

1. Að línan sé beitt í landi og ekki séu önnur veiðarfæri um borð í bátnum.
2. Að bátur komi til löndunar í höfn þeirri þar sem línan var tekin um borð innan 24 klukkustunda frá því að haldið var til veiða úr þeirri höfn.
3. Að sjálfvirkt tilkynningakerfi bátsins sé virkt.
4. Að skipstjóri tilkynni um upphaf og lok róðurs skv. 4. gr.
5. Að við skráningu afla í löndunarhöfn, í aflaupplýsingakerfið Lóðs, komi fram, að veiðarfæri í tilteknum róðri hafi verið landbeitt lína samkvæmt upplýsingum skipstjóra.


2. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skal línuívilnun í þorski á hverju fiskveiðiári takmarkast við 3.375 lestir, 1.472 lestir af ýsu og 644 lestir af steinbít, miðað við óslægðan fisk, sem skiptast þannig innan fiskveiðiársins:


Þorskur Ýsa Steinbítur
1. September – nóvember 1.080 lestir 632 lestir 20 lestir
2. Desember – febrúar 1.280 lestir 472 lestir 65 lestir
3. Mars – maí 770 lestir 272 lestir 400 lestir
4. Júní – ágúst 245 lestir 96 lestir 159 lestir


3. gr.

Fiskistofa fylgist með línuafla og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla hvers tímabils verði náð sbr. 2. gr. Náist ekki að veiða viðmiðunarafla einhvers tímabils bætast ónýttar heimildir við viðmiðunarafla næsta tímabils á eftir. Ráðuneytið tilkynnir síðan frá hvaða degi tiltekinn afli reiknast að fullu til aflamarks.


4. gr.

Skipstjóri skal tilkynna Fiskistofu um upphaf róðurs áður en lagt er úr höfn. Telst róður hafinn þegar tilkynning er send. Skipstjóri skal einnig tilkynna Fiskistofu þegar komið er til hafnar til löndunar. Tilkynningar skal senda í gegnum Símalínu, sjálfvirkan þjónustusíma Fiskistofu. Í tilkynningu skal koma fram frá hvaða höfn bátur rær sbr. 2. tl. 1. gr. Línuívilnun reiknast aðeins á þann afla sem endanlega er vigtaður hér á landi samkvæmt ákvæðum gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla, með síðari breytingum.


5. gr.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í 10. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda 1. september 2005. Jafnfamt er felld úr gildi reglugerð nr. 673, 12. ágúst 2004, um línuívilnun.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 4. ágúst 2005.


Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica