Sjávarútvegsráðuneyti

821/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 362, 22. maí 2003, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. gr., er togbátum, sem taka poka vörpunnar inn á síðunni og togbátum sem eru 29 metrar að mestu lengd eða styttri, heimilt að stunda veiðar með fiskibotnvörpu á svæðinu, enda séu vörpur þeirra búnar leggglugga í samræmi við ákvæði 4. gr.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 885, 8. nóvember 2004, um breytingu á reglugerð nr. 362, 22. maí 2003, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 6. september 2005.


F. h. r.

Jón B. Jónasson.
Guðný Steina Pétursdóttir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica