Sjávarútvegsráðuneyti

692/2005

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Víkurál. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar á svæði í Víkuráli, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 04´00 N – 26° 29´00 V

2. 66° 00´00 N – 26° 26´00 V

3. 65° 49´00 N – 26° 57´00 V

4. 66° 00´00 N – 26° 50´00 V


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði-landhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 22. júlí 2005 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er frá sama tíma felld úr gildi reglugerð nr. 697, 11. október 2002, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Víkurál.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. júlí 2005.


F. h. r.

Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica