Prentað þann 18. apríl 2024
835/2005
Reglugerð um gildistöku ákvarðana framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um heilbrigðiseftirlit á samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum.
1. gr.
Ákvæði samnings um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ákvarðanir gildi hér á landi:
- Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 226/2002/EB, frá 15. mars 2002 um sérstakt heilbrigðiseftirlit við tekju og vinnslu á tilteknum samlokum (tvískelja lindýrum) þegar þörungaeitur sem veldur minnisleysi (ASP) er yfir þeim mörkum sem mælt er fyrir um í tilskipun ráðsins 91/492/EBE sem innleidd var með reglugerð nr. 260/1999 um veiðar, meðferð, vinnslu og dreifingu lifandi samloka. Ákvörðunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31 frá 2003 og var birt í EES-viðbæti nr. 9 frá 2005 á bls. 96.
- Ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 225/2002/EB, frá 15. mars 2002 um nákvæmar reglur varðandi framkvæmd tilskipunar ráðsins 91/492/EBE, sem innleidd var með reglugerð nr. 260/1999 um veiðar, meðferð, vinnslu og dreifingu lifandi samloka, að því er varðar hámarksmagn og greiningaraðferðir á tilteknu sjávarlífeitri í samlokum (tvískelja lindýrum), skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum. Ákvörðunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31 frá 2003 og var birt í EES-viðbæti nr. 9 frá 2005 á bls. 93.
2. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 55/1998 um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoði í 31. gr. laga um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða nr. 55/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 15. september 2005.
F. h. r.
Vilhjálmur Egilsson.
Ásta Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.