Sjávarútvegsráðuneyti

693/2007

Reglugerð um bann við handfæraveiðum suður af Látrabjargi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 31. júlí 2007, eru allar handfæraveiðar bannaðar á svæði suður af Látrabjargi sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 65° 30, 20' N - 24° 32, 10' V
2. 65° 26, 60' N - 24° 37, 90' V
3. 65° 17, 00' N - 23° 47, 00' V
4. 65° 25, 00' N - 23° 42, 29' V

Að norðan markast svæðið af ströndinni.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. júlí 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica