Sjávarútvegsráðuneyti

619/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 511, 26. maí 2005, um skilyrði á sviði heilbrigðis dýra sem hafa áhrif á markaðssetningu sjávareldisdýra og afurða þeirra. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 19. gr. verður svohljóðandi: Eldisdýr og eldisafurðir verða að koma frá þriðju ríkjum eða hlutum þeirra sem eru taldir upp í skrá sem birt er með auglýsingu frá sjávar­útvegs­ráðu­neytinu.

2. gr.

1. mgr. 20. gr. verður svohljóðandi: Fyrir hvert þriðja ríki skulu eldisdýr og eldis­afurðir full­nægja þeim heilbrigðisskilyrðum sem birt eru með auglýsingu frá sjávar­útvegs­ráðuneyt­inu.

3. gr.

Við 22. gr. bætist eftirfarandi málsgrein: Við framkvæmd eftirlits og skoðana sam­kvæmt þess­ari reglugerð skal jafnframt fylgja ákvæðum reglu­gerðar nr. 849/1999 og reglugerðar nr. 513/2005.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 55, 10. júní 1998, um með­ferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum og lögum nr. 33/2002 um eldi nytja­stofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. júní 2006.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.

Ásta Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica