Sjávarútvegsráðuneyti

805/2006

Reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 27. september til og með 31. mars eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 65°03´ N - 26°42´ V
2. 65°10´ N - 26°42´ V
3. 65°10´ N - 25°43´ V
4. 65°03´ N - 25°50´ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. september 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica