Heimildir til fiskveiða og fiskvinnslu o.fl.

975/2006

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Eyrarbakkabug. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. nóvember 2006 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar í Eyrar­bakka­bug á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  63° 39¢ N - 20° 34¢ V
2.  63° 32¢ N - 20° 34¢ V
3.  63° 36¢ N - 21° 06¢ V
4.  63° 46¢ N - 21° 11¢ V
5.  63° 49¢ N - 21° 11¢ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 27. nóvember 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica