Umhverfisráðuneyti

368/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð um barnamat fyrir ungbörn og smábörn, nr. 140/2003. - Brottfallin

368/2004

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um barnamat fyrir
ungbörn og smábörn, nr. 140/2003.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:


Skilgreiningar.

Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:

a) Varnarefni eru efni sem notuð eru m.a. gegn illgresi, sveppum og meindýrum við framleiðslu eða geymslu matvæla;
b) varnarefnaleifar eru leifar af varnarefnum að meðtöldum umbrots-, niðurbrots- og myndefnum þeirra;
c) ungbörn eru börn yngri en 12 mánaða;
d) smábörn eru börn á aldrinum eins til þriggja ára.


2. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:


Varnarefnaleifar.

Í tilbúnum barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat skulu ekki vera nein efni í því magni sem stefnt getur heilsu ungbarna og smábarna í hættu. Þá skal hámarksmagn leifa þeirra varnarefna sem tilgreind eru í VII. viðauka ekki vera hærra en þar kemur fram. Hámarksmagn fyrir önnur efni í barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat fyrir ungbörn og smábörn sem er tilbúinn til neyslu eða tilreiddur samkvæmt fyrirmælum frá framleiðanda skal vera 0,01 mg/kg.

Varnarefnin sem skráð eru í VIII. og IX. viðauka er óheimilt að nota við framleiðslu á landbúnaðarafurðum sem ætlaðar eru til framleiðslu á barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat fyrir ungbörn og smábörn.

Við eftirlit gilda eftirfarandi viðmið um magn varnarefna:

a) Varnarefnin í VIII. viðauka eru ekki talin hafa verið notuð ef leifar þeirra eru ekki meiri en 0,003 mg í hverju kg af barnamat eins og hann er tilbúinn til neyslu eða tilreiddur samkvæmt fyrirmælum frá framleiðanda enda er það minnsta greinanlegt magn þessara efna.
b) Varnarefnin í IX. viðauka eru ekki talin hafa verið notuð ef leifar þeirra eru ekki meiri en 0,003 mg í hverju kg af barnamat eins og hann er tilbúinn til neyslu eða endurgerður samkvæmt fyrirmælum frá framleiðanda.

Nota skal staðlaðar og almennt viðurkenndar aðferðir við greiningu á magni varnarefnaleifa.


3. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi viðauki:


VII. VIÐAUKI

Hámarksgildi varnarefnaleifa í barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat fyrir ungbörn og smábörn eins og hann er tilbúinn til neyslu eða tilreiddur samkvæmt fyrirmælum frá framleiðanda:

Efnaheiti
Hámarksgildi varnarefna
eða niðurbrotsefna þeirra
(mg/kg)
Kadúsafos
0,006
Demeton-S-metýl/demeton-S-metýl sulfon/oxýdemeton-metýl (saman eða í sitt hvoru lagi, gefið upp sem demeton-S-metýl)
0,006
Etoprófos
0,008
Fípróníl (samanlagt fípróníl og fípróníl-dí-súlfinýl, gefið upp sem fípróníl)
0,004
Própíneb/própýlenþíóúrea
0,006

4. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi viðauki:


VIII. VIÐAUKI

Varnarefni sem óheimilt er að nota við framleiðslu á landbúnaðarafurðum sem ætlaðar eru til framleiðslu á barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat fyrir ungbörn og smábörn:

Efnaheiti (skv. skilgreiningu á varnarefnaleifum)
Dísúlfon (samanlagt dísúlfoton, dísúlfoton súlfoxíð, dísúlfon sulfon, gefið upp sem dísúlfóton)
Fensúlfóþíon (samanlagt fensúlfóþíon, súrefnishliðstæðu þess og þeirra súlfónum, gefið upp sem fensúlfóþíon)
Fentin, gefið upp sem trífenýltín jákvætt hlaðin jón (tryphenyltin cation)
Haloxýfóp (samanlagt haloxýfóp, sölt þeirra efna og esterar á beygðu formi) gefið upp sem fensulfotíon
Heptaklór og trans-heptaklór epoxíð, gefið upp sem heptaklór
Hexaklórbensen
Nítrófen
Ómetoat
Terbúfos (samanlagt terbúfos, súlfoxíði þess og sulfóni, gefið upp sem terbúfos)



5. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi viðauki:


IX. VIÐAUKI

Varnarefni sem óheimilt er að nota við framleiðslu á landbúnaðarafurðum sem ætlaðar eru til framleiðslu á barnamat þar sem korn er uppistaðan og öðrum barnamat fyrir ungbörn og smábörn:

Efnaheiti
Aldrín og díeldrin, ritað sem díeldrin
Endrín



6. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995 sbr. og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 og til innleiðingar á tilskipun 2003/13/EB sem vísað er til í 4. tölul. XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópskt efnahagssvæði. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 20. apríl 2004.

F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica