Umhverfisráðuneyti

305/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 587/1993, um bragðefni í matvælum. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:


Ákvæði til bráðabirgða.

Framkvæmdastjórn EB hefur með ákvörðun nr. 1999/217/EB frá 23. febrúar 1999, með breytingu nr. 2000/489/EB, birt lista yfir bragðefni, sem notuð eru í matvælum. Jafnframt hefur verið sett af stað áætlun í samræmi við reglugerðir nr. 2232/1996/EB og nr. 1565/2000/EB til að meta bragðefnin með tilliti til ýmissa þátta. Að matsferlinu loknu munu íslensk stjórnvöld birta lista yfir bragðefni sem heimil eru til notkunar í matvælum.


2. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.


Umhverfisráðuneytinu, 27. mars 2001.

Siv Friðleifsdóttir.
Ingimar Sigurðsson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica