Atvinnuvegaráðuneyti

522/2026

Reglugerð um (64.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2473 frá 5. desember 2025 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir Betabaculovirus phoperculellae, járn (sem frumefni) og repjuolíu í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 139.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica