1238/2025
Reglugerð um (39.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar evrópuþingsins og ráðsins (eb) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/651 frá 2. apríl 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á ein- og tvíglýseríðum af fitusýrum (E 471) og karnúbavaxi (E 903) sem húðunarefnum á tiltekin fersk aldin og kassava og á lesitínum (E 322) og fitusýrum (E 570) sem burðarefnum í húðunarefni á kassava. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 458.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/652 frá 2. apríl 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á stevíólglýkósíðum sem eru framleidd með gerjun með því að nota Yarrowia lipolytica. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 463.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/666 frá 4. apríl 2025 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun á natríumkarboxýmetýlsellulósa, sellulósagúmmíi (E 466) og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar nákvæmar skilgreiningar fyrir sellulósa (E 460), metýlsellulósa (E 461), etýlsellulósa (E 462), hýdroxýprópýlsellulósa (E 463), hýdroxýprópýlmetýlsellulósa (E 464), etýlmetýlsellulósa (E 465), natríumkarboxýmetýlsellulósa, sellulósagúmmí (E 466), víxltengdan natríumkarboxýmetýlsellulósa, víxltengt sellulósagúmmí (E 468) og karboxýmetýlsellulósa sem er vatnsrofinn með ensími (E 469). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 206/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 469.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 27. nóvember 2025