1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 12/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Svava Pétursdóttir.