Atvinnuvegaráðuneyti

407/2025

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla auk áorðinna breytinga.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 262/2024 frá 6. desember 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framseld reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/908 frá 17. janúar 2024 um breyt­ingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 að því er varðar fjölda og heiti fastra sérfræðinganefnda á vegum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 634.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. mars 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica