Matvælaráðuneyti

440/2022

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 884/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 333/2007 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna opinbers eftirlits með innihaldi blýs, kadmíums, kvikasilfurs, ólífræns tins, 3-MCPD og bensó(a)pýrens í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2021, frá 9. júlí 2021 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/705 frá 28. apríl 2021 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 333/2007 að því er varðar tilskilinn fjölda hlutasýna og nothæfis­viðmiðanir fyrir nokkrar greiningaraðferðir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. febrúar 2022, bls. 702.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 12. apríl 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica