Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

637/2021

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og af tilteknum lagardýraafurðum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð (dýraheilbrigði).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 frá 16. desember 2020 um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 12. maí 2021, bls. 367.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.

 

3. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og laga nr. 71/2008, um fiskeldi.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 168/2011, með síðari breytingum.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. maí 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Reglugerðir sem falla brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica