Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

332/2021

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni.

1. gr.

3. tl. í viðauka I við reglugerðina orðast svo:

Á Austur- og Suðausturlandi, frá Smjörfjallalínu að Jökulsá á Breiðamerkursandi.

 

2. gr.

4. tl. í viðauka I við reglugerðina fellur brott.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. mars 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica