Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

782/2019

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 406/2010 um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2019, frá 14. júní 2019, öðlast eftirtalin reglugerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/343 frá 28. febrúar 2019 um undanþágur frá 3. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1924/2006 um næringar- og heilsu­fullyrðingar er varða matvæli vegna notkunar á tilteknum almennum lýsingum. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 30.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica