Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

421/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 489/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 136/2004 um reglur um heilbrigðiseftirlit dýralæknis á landamærastöðvum með afurðum sem eru fluttar inn frá þriðju löndum. - Brottfallin

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/591 frá 11. apríl 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð (EB) nr. 136/2004 að því er varðar að færa Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og tilteknar hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd þaðan sem leyfður er aðflutningur á sendingum af heyi og hálmi til Sambandsins.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um inn­flutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. maí 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica