1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
2. gr.
2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 136/2004 frá 22. janúar 2004 um reglur um heilbrigðiseftirlit dýralæknis á skoðunarstöðvum Bandalagsins á landamærum með afurðum sem eru fluttar inn frá þriðju löndum er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Um þvingunarúrræði og brot gegn reglugerð þessari er varða viðurlögum fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim eða ákvæðum laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir.
4. gr.
Matvælastofnun annast eftirlit samkvæmt reglugerð þessari.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 17. gr. a laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, 31. gr. laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. maí 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.