Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

316/2017

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Á eftir 48. tölulið 1. gr. reglugerðarinnar kemur nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/27 frá 13. janúar 2016 um breytingu á III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heila­hrörnunar. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 5/2017, frá 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 26.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica